4-5 En ávann Abraham sér ekki rétt til að komast til himna með öllum sínum góðu verkum? Nei, því að hjálpræðið er alltaf óverðskulduð gjöf. Ef einhver gæti unnið sér inn fyrir því með góðverkum, þá væri það ekki lengur ókeypis! Það er gefið þeim sem ekki hafa unnið fyrir því. Guð segir beinlínis: „Syndarinn er sýknaður í mínum augum, ef hann treystir því að Kristur frelsi hann frá dómi mínum yfir syndinni.“
10 Til þess að fá svar við þessari spurningu verðum við fyrst að svara annarri: Hvenær veitti Guð Abraham blessunina? Það var áður en hann varð Gyðingur, það er að segja áður en hann tók hina gyðinglegu vígslu sem kallast umskurn.
11 Það var ekki fyrr en eftir að Guð hafði lofað að blessa hann, vegna trúar hans, að hann var umskorinn. Umskurnin var tákn þess að Abraham átti þá þegar trú og að Guð hafði tekið hann að sér og lýst því yfir að í sínum augum væri hann góður og réttlátur. Samkvæmt þessu er Abraham hinn andlegi faðir þeirra sem trúa og frelsast án þess að halda sig við lögin. Af þessu sjáum við að Guð réttlætir þá sem trúa, enda þótt þeir haldi ekki þessar reglur. 12 Abraham er einnig andlegur faðir hinna umskornu – Gyðinganna – og með því að athuga líf hans geta þeir séð að það er ekki þessi siðvenja – umskurnin – sem frelsar þá, heldur trúin. Eingöngu hennar vegna hlaut Abraham miskunn Guðs áður en hann var umskorinn.
16 Blessun Guðs veitist okkur ókeypis fyrir trúna, sem gjöf. Við erum þess fullviss að okkur veitist hún, ef við trúum eins og Abraham, hvort sem við erum Gyðingar eða ekki, því að Abraham er faðir okkar allra að því er trúna varðar. 17 Þetta á Gamla testamentið við þegar það segir að Guð hafi gert Abraham að föður margra þjóða. Guð vill taka á móti öllum sem treysta honum eins og Abraham gerði, hverrar þjóðar sem þeir eru. Loforðið sem hann fékk var frá sjálfum Guði, honum sem reisir hina dauðu og segir fyrir um atburði framtíðarinnar af nákvæmni eins og um liðinn tíma sé að ræða.
18 Þegar Guð sagði Abraham að hann mundi gefa honum son sem eignast mundi marga afkomendur og verða faðir mikillar þjóðar, þá trúði Abraham Guði, jafnvel þótt slíkt loforð virtist algjör fásinna. 19 Abraham var ekki áhyggjufullur þótt bæði hann, sem var á hundraðasta aldursári og Sara sem var níræð, væru komin úr barneign, því að hann treysti orðum Guðs óhikað.
20 Abraham efaðist aldrei. Hann trúði Guði. Trú hans styrktist og hann þakkaði Guði fyrir þetta loforð löngu áður en það rættist. 21 Hann var sannfærður um að Guði reyndist auðvelt að efna allt sem hann hefði lofað. 22 Vegna trúar Abrahams fyrirgaf Guð honum syndir hans og sýknaði hann.
23 Þessi mikilvæga yfirlýsing – að hann væri tekinn gildur vegna trúar sinnar og þar með viðurkenndur réttlátur – var ekki aðeins Abraham til góðs, 24 heldur okkur líka. Þetta er okkur trygging þess að Guð vilji taka okkur að sér á sama hátt og Abraham, það er að segja þegar við trúum loforðum Guðs, hans sem reisti Jesú upp frá dauðum. 25 Jesús dó fyrir syndir okkar og reis síðan upp til að sætta okkur við Guð og gefa okkur réttlæti hans.
<- Rómverjabréfið 3Rómverjabréfið 5 ->