5 Þá lyfti engillinn voldugi, sem stóð á hafinu og jörðinni, hægri hendi til himins, 6 og sór við þann sem lifir um alla eilífð, hann sem skapaði himin og allt sem þar er, jörðina og allt sem á henni er, hafið og allt sem í því er, og sagði: „Nú er fresturinn á enda! 7 Þegar sjöundi engillinn blæs í lúður sinn, mun leyndardómur Guðs birtast og verða að veruleika, eins og hann boðaði þjónum sínum, spámönnunum, forðum daga.“
8 Röddin frá himni talaði aftur til mín og sagði: „Farðu og taktu opnu bókina úr hendi volduga engilsins, sem stendur á hafinu og jörðinni.“
9 Ég gekk til hans og bað hann að afhenda mér bókina. „Já, taktu hana og borðaðu hana,“ sagði hann. „Fyrst mun hún bragðast eins og hunang, en þegar þú hefur rennt henni niður finnst þér hún beisk.“
10 Þá tók ég við bókinni úr hendi hans og át hana. Það fór eins og hann hafði sagt, fyrst var hún sæt, en þegar ég hafði rennt henni niður fann ég sáran sviða.
11 Þá sagði hann við mig: „Þú átt eftir að bera fram marga aðra spádóma um fólk, þjóðir, ættkvíslir og konunga.“
<- Opinberun Jóhannesar 9Opinberun Jóhannesar 11 ->