6 Ó, Drottinn, mikil eru máttarverk þín! 7 Þeir einir sem ekki nenna að hugsa, fara þeirra á mis. Heimskingjarnir skilja ekki 8 að hinir óguðlegu – sem í bili virðast hafa það gott – munu afmáðir að eilífu. 9 En Drottinn, þú lifir að eilífu, hátt upphafinn á himnum, 10 meðan óvinir þínir – illgjörðamennirnir – tvístrast.
11 Ég finn styrk og kraft, en Drottinn, allt er það þér að þakka! Blessun þín hefur endurnært mig. 12 Ég heyrði dóminn yfir óvinum mínum og sá þegar þeim var eytt. 13 En hinir réttlátu munu blómgast líkt og ávaxtatré, já vaxa eins og sedrustrén í Líbanon.
14 Því að þeir eru gróðursettir í garði Drottins og njóta umhyggju hans. 15 Jafnvel á elliárunum bera þeir ávöxt og eru sem laufguð tré. 16 Þeir bera vitni um réttlæti Drottins, að hann er skjól og vernd og allt sem hann gerir er gott!
<- Sálmarnir 91Sálmarnir 93 ->