Link to home pageLanguagesLink to all Bible versions on this site
67
1-2  Ó, veittu okkur miskunn þína og náð! Leyfðu okkur að sjá þig og kærleika þinn. 3 Leyfðu öllum mönnum að fá að kynnast þér og þekkja hjálpræði þitt. 4 Allar þjóðir skulu lofa Drottin. 5 Þær skulu fagna og gleðjast, því að þú færir þeim réttlæti, og leiðir þær um réttan veg. 6 Allur heimurinn lofi þig, ó Guð! Já, allar þjóðir í heiminum flytji þér þakkargjörð! 7-8  Því að uppskera jarðarinnar varð mikil og Guð, hefur blessað okkur ríkulega. Og hann blessi okkur áfram svo að allar þjóðir megi óttast hann og elska.

<- Sálmarnir 66Sálmarnir 68 ->