10 Drottinn, ég þrái bót á meini mínu! Þú heyrir kvein mín og andvörp. 11 Hjartað hamast í brjósti mér, kraftar mínir búnir og sjónin dvín. 12 Ástvinir mínir og góðir grannar forðast sjúkdóm minn og böl og frændur mínir eru á bak og burt.
13 Óvinir mínir sæta færis að drepa mig. Liðlangan daginn sitja þeir á svikráðum, brugga mér banaráð. 14-15 En illráð þeirra verka ekki á mig! Ég virði þá ekki viðlits. Áform þeirra rætast ekki, 16 því að ég vona á þig, Drottinn, Guð minn. Kom þú og vernda mig. 17 Þaggaðu niður í þeim sem hlæja að óförum mínum.
18 Ég er að falli kominn og angist mín er enn hin sama. 19 Ég játa syndir mínar og iðrast þess sem ég hef gert. 20 En ofsóknum óvina minna linnir ekki og heift þeirra minnkar ekki. Þeir hata mig án ástæðu. 21 Þeir launa mér gott með illu, hata mig fyrir góðverk mín.
22 Yfirgefðu mig ekki, Drottinn. Vík ekki frá mér! 23 Komdu skjótt og hjálpaðu mér, þú frelsari minn!
<- Sálmarnir 37Sálmarnir 39 ->