3 Raust Drottins fyllir himininn, hún kveður við eins og þruma! 4 Rödd hans hljómar kröftuglega, hún hljómar af mikilleik og tign. 5-6 Hún fellir sedrustrén til jarðar og klýfur hin hávöxnu tré í Líbanon. Raust Drottins skekur fjöllin í Líbanon og hristir Hermonfjall. Hans vegna hoppa þau um eins og ungir kálfar! 7-8 Rödd Drottins kveður við í eldingunni og endurómar í eyðimörkinni sem nötrar endanna á milli. 9 Raust Drottins skekur skógartrén, feykir burt laufi þeirra og lætur hindirnar bera fyrir tímann. Allir þeir sem standa í helgidómi hans segja: „Dýrð! Já, dýrð sé Drottni!“
10 Flóðið mikla var ógurlegt, en Drottinn er enn meiri! Og enn birtir hann mátt sinn og kraft. 11 Hann mun veita lýð sínum styrkleik og blessa hann með friði og velgengni.
<- Sálmarnir 28Sálmarnir 30 ->