Link to home pageLanguagesLink to all Bible versions on this site

1 Hallelúja! Lofið Drottin! Syngið honum nýjan söng. Lofsyngið honum öll þjóðin.

2 Ó, Ísrael, gleð þig yfir skapara þínum. Þið sem búið í Jerúsalem, fagnið yfir konungi ykkar! 3 Lofið nafn hans með gleðidansi og leikið fyrir hann á bumbur og gígjur.

4-5  Drottinn hefur unun af lýð sínum. Hann frelsar hina auðmjúku. Hinir trúuðu gleðjist með sæmd og syngi fagnandi í hvílum sínum.

6-7  Lofið hann, þið fólk hans! Framkvæmið refsingu hans á þjóðunum með tvíeggjuðu sverði. 8 Setjið konunga þeirra og fyrirmenn í járn og fullnægið á þeim skráðum dómi. Drottinn er vegsemd þjóðar sinnar. Hallelúja!

<- Sálmarnir 148Sálmarnir 150 ->