Link to home pageLanguagesLink to all Bible versions on this site

1 Allt frá bernsku var ég ofsóttur (það er Ísrael sem talar) 2 og misréttinu linnti ekki – en aldrei var ég þurrkaður út. Aldrei hefur óvinum mínum tekist að uppræta mig!

3-4  Þótt þeir húðstrýktu mig og tættu bak mitt, þá segi ég samt: „Drottinn er góður!“ Því að hann braut hlekkina sem illmennin höfðu fjötrað mig með.

5 Þeir sem hata Jerúsalem skulu verða til skammar og flýja. 6-7  Þeir skulu vera eins og gras á þaki – það skrælnar áður en það hefur vaxið og myndað fræ. Sláttumaðurinn mun grípa í tómt og sá sem bindur fær ekki neitt. 8 Þeir sem framhjá fara skulu ekki óska þér blessunar. En við ykkur segjum við: „Drottinn blessi þig!“

<- Sálmarnir 128Sálmarnir 130 ->