Link to home pageLanguagesLink to all Bible versions on this site

1 Hefði það ekki verið Drottinn sem með okkur var þetta skulu allir í Ísrael játa – hefði það ekki verið Drottinn, 2-3  þá hefðu óvinirnir gleypt okkur lifandi, útrýmt okkur í heiftarreiði sinni. 4-5  Við hefðum skolast burt á augabragði, horfið í strauminn.

6 Lofaður sé Drottinn, hann bjargaði okkur úr klóm þeirra. 7 Við sluppum eins og fugl úr snöru veiðimanns. Snaran gaf sig og við flugum burt!

8 Hjálp okkar kemur frá Drottni sem skapaði himin og jörð.

<- Sálmarnir 123Sálmarnir 125 ->