Link to home pageLanguagesLink to all Bible versions on this site

1 Hvernig getið þið sagt: „Flýðu til fjallanna og leitaðu skjóls!?“ Vitið þið ekki að ég treysti því að Drottinn muni hjálpa mér.

2 Óguðlegir leggja ör á streng, spenna boga sína og miða úr launsátri á lýð Guðs. 3 Menn segja: „Lögin hafa verið afnumin! Hinir réttlátu verða að forða sér.“

4 En, Drottinn er enn í sínu heilaga musteri. Hann ríkir enn frá himnum. Hann fylgist grannt með öllu sem gerist á jörðu. 5 Hann prófar bæði trúaða og vantrúaða. Hann fyrirlítur þá sem elska ofbeldi. 6 Hann mun senda eld og brennistein yfir illgjörðamennina og svíða þá með glóheitum vindi.

7 Því að Guð er réttlátur og hefur mætur á góðum verkum. Hinir hjartahreinu munu sjá auglit hans.

<- Sálmarnir 10Sálmarnir 12 ->