Link to home pageLanguagesLink to all Bible versions on this site

1 Öll veröldin fagni fyrir Drottni! 2 Þjónið Drottni með gleði, gangið fram fyrir hann með fagnaðarsöng!

3 Reynið að skilja hvað í því felst að Drottinn er Guð. Við erum handaverk hans! Fólkið sem hann leiðir.

4 Gangið inn um hlið hans með þakkargjörð, í forgarða hans með lofsöng. Þakkið honum, lofið nafn hans. 5 Því að Drottinn er góður! Miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kynslóð til kynslóðar.

<- Sálmarnir 99Sálmarnir 101 ->