5 Þarna lá maður sem verið hafði veikur í þrjátíu og átta ár. 6 Þegar Jesús sá hann og vissi hve lengi hann hafði verið veikur, spurði hann: „Viltu verða heilbrigður?“
7 „Það er útilokað,“ svaraði maðurinn, „ég hef engan til að hjálpa mér ofan í laugina þegar hreyfing verður á vatninu og þess vegna verður alltaf einhver annar á undan mér.“
8 Þá sagði Jesús: „Stattu upp, vefðu saman dýnuna þína og farðu heim til þín!“
9 Maðurinn varð heilbrigður á samri stundu! Hann vafði saman dýnuna og gekk.
11 „Sá sem læknaði mig, sagði mér að gera það,“ svaraði maðurinn.
12 „Hver sagði þér að gera slíkt?“ spurðu þeir hranalega.
13 Það vissi maðurinn ekki, því að Jesús hafði horfið í mannþröngina. 14 Seinna hitti Jesús þennan sama mann í musterinu og sagði við hann: „Nú ertu heilbrigður. Syndga ekki framar, svo ekki hendi þig eitthvað enn verra.“
15 Maðurinn fór þá til leiðtoga fólksins og sagði þeim að Jesús væri sá sem hefði læknað sig. Það varð til þess að 16 þeir ofsóttu Jesú fyrir að brjóta helgidagslöggjöfina. 17 Þá sagði hann: „Faðir minn starfar allt til þessa og ég starfa einnig.“
18 Eftir þetta svipuðust leiðtogarnir enn frekar eftir tækifæri til að taka hann af lífi, því að auk þess að brjóta helgidagslöggjöf þeirra, talaði hann um Guð sem föður sinn og gerði sig þar með Guði jafnan.
19 Um þetta sagði Jesús: „Sonurinn getur ekkert gert á eigin spýtur. Hann gerir það eitt sem hann sér föðurinn gera og fer síðan eins að. 20 Faðirinn elskar soninn og sýnir honum allt sem hann gerir. Seinna mun sonurinn vinna enn meiri kraftaverk en það að lækna þennan mann. 21 Hann mun meðal annars vekja upp frá dauðum þá sem hann vill, rétt eins og faðirinn. 22 Faðirinn lætur soninn um að dæma syndina, 23 svo að allir heiðri soninn eins og þeir heiðra föðurinn. Ef þið viljið ekki heiðra son Guðs, sem Guð sendi ykkur, þá heiðrið þið ekki heldur föðurinn.
24 Ég segi ykkur satt og legg á það áherslu, að hver sem heyrir orð mín og trúir Guði, sem sendi mig, eignast eilíft líf og mun aldrei hljóta dóm fyrir syndir sínar, heldur hefur hann þá þegar stigið yfir frá dauðanum til lífsins. 25 Og það er líka satt að sú stund kemur, hún er reyndar þegar komin, er hinir dauðu heyra rödd mína – rödd Guðssonarins – og þeir sem heyra munu lifa. 26 Faðirinn hefur eilíft líf í sjálfum sér og hann hefur einnig veitt syninum sama líf. 27 Og hann hefur veitt honum rétt til að dæma syndir allra manna, því að hann er mannssonurinn. 28 Látið það ekki koma ykkur á óvart, en sú stund er svo sannarlega skammt undan, er allir hinir dauðu, sem í gröfunum eru, munu heyra rödd Guðssonarins 29 og rísa upp. Þeir sem gott hafa gert til eilífs lífs, en þeir til dóms, sem lagt hafa stund á hið illa.
30 Ég dæmi engan án þess að ráðfæra mig fyrst við föður minn. Dómur minn er í fullu samræmi við hans vilja, réttvís og sanngjarn, því að hann er ekki aðeins samkvæmt mínum vilja heldur einnig samkvæmt vilja Guðs sem sendi mig.
31 Þegar ég fullyrði eitthvað um sjálfan mig, trúið þið mér ekki, 32-33 en einn maður talar þó mínu máli og það er Jóhannes skírari. Þið fóruð að hlusta á hann og ég undirstrika að allt sem hann sagði um mig er satt! 34 Hvers vegna minni ég ykkur á vitnisburð Jóhannesar? Jú, til að auðvelda ykkur að trúa mér og frelsast, en þó er besti vitnisburðurinn um mig ekki frá manni. 35 Ljós Jóhannesar skein skært um stund og þið nutuð þess og glöddust, 36 en þegar ég segi að ég hafi betra vitni en Jóhannes, þá á ég við kraftaverkin sem ég geri. Faðir minn hefur falið mér að vinna þau og þau sanna að faðirinn hefur sent mig. 37 Hann hefur sjálfur vitnað um mig, þó ekki þannig að þið sæjuð hann eða heyrðuð rödd hans. 38 Þið vitið ekki heldur hvað hann segir því að þið viljið ekki trúa mér, en boðskapur minn er frá honum.
39 Þið rannsakið Gamla testamentið, því að þið álítið að það gefi ykkur eilíft líf, en svo vitið þið ekki að það vitnar um mig! 40 Hvers vegna viljið þið ekki koma til mín, svo að ég geti gefið ykkur eilíft líf?
41-42 Ég sækist ekki eftir vinsældum ykkar, því ég veit vel að þið berið ekki kærleika til Guðs. 43 Ég veit hvað ég er að segja, því að ég kom til að kynna ykkur föður minn. Samt viljið þið ekkert með mig hafa. Þið takið hins vegar vel á móti þeim sem koma á eigin vegum, en þá hef ég ekki sent. 44 Það er ekkert undarlegt þótt þið trúið ekki! Þið þiggið heiður hver af öðrum en leitið ekki þess heiðurs sem Guð einn getur veitt!
45 En ég mun samt ekki ákæra ykkur frammi fyrir föðurnum, heldur Móse. Von ykkar um guðsríki hvílir á lögum Móse, 46 en samt hafið þið ekki viljað trúa honum. Hann ritaði um mig, en þið viljið ekki trúa honum og þess vegna viljið þið ekki heldur trúa mér. 47 Fyrst þið trúið ekki orðum hans, þá er ekki að undra þótt þið trúið ekki orðum mínum.“
<- Jóhannes 4Jóhannes 6 ->