2 Nokkrir okkar voru þar, Símon Pétur, Tómas, „tvíburinn“, Natanael frá Kana í Galíleu, Jakob bróðir minn og ég, og tveir aðrir lærisveinar.
3 „Ég ætla út að fiska,“ sagði Símon Pétur.
5 Hann kallaði til okkar og sagði: „Hafið þið fengið nokkuð, drengir?“
6 „Kastið þá netinu hægra megin við bátinn og þá munuð þið fáʼann!“ kallaði hann. Þetta gerðum við og þá fylltist netið af fiski og var mergðin slík að við gátum ekki innbyrt það.
7 Þá sagði ég við Pétur: „Þetta er Drottinn!“ Þá snaraði Pétur sér úr treyjunni, stökk út í og synti að landi. 8 Við hinir vorum kyrrir í bátnum og drógum netið, sem var alveg fullt, á eftir okkur þennan spöl, sem við áttum ófarinn í land. 9 Þegar þangað kom, sáum við að þar hafði verið kveiktur eldur. Einnig var þar steiktur fiskur og brauð.
10 „Komið hingað með nokkra af fiskunum, sem þið veidduð,“ sagði Jesús. 11 Símon Pétur fór þá og dró netið á land og taldi úr því 153 stóra fiska. En þótt fjöldinn væri slíkur, hafði netið ekki rifnað.
12 „Komið, við skulum fá okkur að borða,“ sagði Jesús. Enginn okkar þorði að spyrja hann, hvort hann væri Drottinn í raun og veru, við vorum reyndar vissir um að svo væri. 13 Og hann skipti á milli okkar fiskunum og brauðinu.
14 Þetta var í þriðja sinn sem Jesús birtist okkur eftir upprisuna.
15 Að morgunverðinum loknum, sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jónasson, elskar þú mig meira en þeir hinir?“
16 Jesús endurtók spurninguna og sagði: „Símon Jónasson, elskar þú mig í raun og veru?“
17 Og í þriðja sinn spurði Jesús hann: „Símon Jónasson, ert þú sannur vinur minn?“
20 Pétur sneri sér þá við og sá mig, lærisveininn sem Jesús elskaði, koma á eftir sér, en það var ég sem hafði hallað mér upp að Jesú við kvöldmáltíðarborðið og spurt: „Meistari, hver af okkur mun svíkja þig?“ 21 Pétur spurði því Jesú: „Hvað með hann, Drottinn? Hvernig mun hann deyja?“
22 Jesús svaraði: „Hvað varðar þig um það, ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem aftur? En þú skalt fylgja mér.“
23 Þetta varð til þess að sá orðrómur barst út meðal bræðranna að þessi lærisveinn mundi ekki deyja, en það hafði Jesús ekki sagt. Hann sagði aðeins: „Hvað varðar þig um það, ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem aftur?“
24 Ég er þessi lærisveinn! Ég sá þessa atburði gerast og hef ritað um þá hér. Við vitum að frásögn mín er sönn.
25 Ég býst við að heimurinn mundi varla rúma allar þær bækur sem til yrðu, ef skrifa ætti allt sem gerðist í lífi Jesú.
<- Jóhannes 20