4 „Ég get ekki hjálpað þér núna,“ sagði hann, „minn tími er enn ekki kominn.“ 5 En móðir hans sagði við þjónana: „Gerið allt eins og hann segir ykkur.“
6 Þarna stóðu sex steinker, sem notuð voru við ákveðna trúarsiði, og tók hvert þeirra um hundrað lítra.
7-8 Jesús sagði nú þjónunum að fylla þau af vatni. Að því búnu sagði hann: „Takið nú smásopa af þessu og færið veislustjóranum.“
9 Þegar veislustjórinn bragðaði á vatninu, sem nú var orðið að víni, varð hann undrandi því hann vissi ekki hvaðan það var komið (þótt þjónarnir vissu það). Hann kallaði þá á brúðgumann.
10 „Þetta er frábært vín!“ sagði hann. „En þú ert ekki eins og aðrir. Flestir bera fyrst fram besta vínið, en þegar menn eru orðnir ölvaðir og kæra sig ekki um meira, þá eru teknar fram ódýru tegundirnar. Þú hefur hins vegar geymt það besta þar til síðast.“
11 Þetta fyrsta kraftaverk sitt gerði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði með því dýrð sína. Það varð til þess að lærisveinarnir trúðu að hann væri Kristur.
12 Eftir brúðkaupið fór Jesús til Kapernaum, ásamt móður sinni, bræðrum og lærisveinum, og voru þau þar í nokkra daga.
17 Þetta minnti lærisveinana á spádóm í Biblíunni, sem þannig hljóðar: „Umhyggja fyrir húsi Guðs mun ekki láta mig í friði.“
18 „Hvaða rétt hefur þú til að reka þá út?“ spurðu leiðtogar fólksins hranalega. „Ef þú hefur vald þitt frá Guði, sýndu okkur þá kraftaverk því til sönnunar.“
19 „Já,“ svaraði Jesús, „þetta kraftaverk skuluð þið fá: Brjótið þennan helgidóm niður og ég mun reisa hann á þrem dögum!“
20 „Hvað þá!“ hrópuðu þeir. „Það tók fjörutíu og sex ár að byggja þetta musteri, en þykist þú geta reist það á þrem dögum?“ 21 Með orðinu „helgidómur“ átti Jesús við líkama sinn. 22 Eftir upprisu hans minntust lærisveinar hans þessara orða, og skildu að það sem hann tilnefndi úr Biblíunni, átti við hann sjálfan og rættist allt.
23 Kraftaverkin sem Jesús gerði í Jerúsalem yfir páskahátíðina, sannfærðu marga um að hann væri í raun og veru Kristur. 24-25 En hann treysti ekki þessu fólki, því að hann þekkti hugsanir þess fullkomlega og vissi hve menn eru fljótir að skipta um skoðun!
<- Jóhannes 1Jóhannes 3 ->