4 Virðum nú fyrir okkur tign Melkísedeks:
8 (c) Prestar Gyðinga tóku við tíund, og það þótt dauðlegir væru, en okkur er sagt að Melkísedek lifi áfram.
9 (d) Það mætti jafnvel segja að sjálfur Leví (forfaðir allra Gyðingapresta – allra sem taka við tíund) hafi greitt Melkísedek tíund með höndum Abrahams. 10 Því að þótt Leví væri þá ekki fæddur – þegar Abraham greiddi Melkísedek tíundina – þá var efnið samt til í Abraham, sem Leví var síðar myndaður af.
11 (e) Ef Gyðingaprestarnir og lög þeirra hefðu getað frelsað okkur, hvers vegna var þá Guð að senda Krist, sem prest á borð við Melkísedek? Hefði honum ekki nægt að senda einhvern sem hefði haft sömu tign og Aron – það er að segja þá tign, sem allir Gyðingaprestarnir höfðu?
12-14 Þegar Guð stofnar nýjan prestdóm, verður hann að breyta lögum sínum til þess að slíkt sé unnt. Eins og við vitum var Kristur ekki af ætt Leví, prestaættinni, heldur af ætt Júda, en sú ætt hafði ekki verið valin til prestþjónustu; Móse hafði aldrei falið henni slíkt. 15 Af þessu getum við glögglega séð að Guð breytti til. Nýi æðsti presturinn, Kristur – prestur á borð við Melkísedek – 16 varð ekki prestur vegna þess að hann uppfyllti þau gömlu skilyrði að vera af ætt Leví, heldur vegna þess að líf og kraftur streymdu út frá honum. 17 Þetta bendir sálmaskáldið á er hann segir um Krist: „Þú ert prestur að eilífu á borð við Melkísedek.“
18 Þessi gamla prestþjónusta, sem grundvölluð var á ættartengslum, var lögð niður, því að hún dugði ekki til. Hún var vanmáttug og kom ekki að gagni við að frelsa fólk. 19 Í raun og veru gátu lögin og þessi prestþjónusta ekki réttlætt neinn mann í augum Guðs. Við eigum hins vegar betri von, því að Kristur gerir okkur þóknanleg í augum Guðs og opnar okkur leiðina til hans.
20 Guð sór þess eið að Kristur yrði prestur um alla framtíð, 21 en það hafði hann aldrei ætlað hinum prestunum. Þetta sagði hann við Krist, og aðeins hann: „Drottinn strengir þess heit og mun aldrei skipta um skoðun: Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“ 22 Á grundvelli þessa heitis, getur Kristur að eilífu tryggt árangurinn af þessu nýja og betra fyrirkomulagi.
23 Samkvæmt gamla fyrirkomulaginu þurfti marga presta, og þegar þeir dóu einn af öðrum, tóku hinir yngri við.
24 En Jesús lifir að eilífu og heldur áfram að vera prestur, þar verða engin mannaskipti. 25 Þess vegna getur hann fullkomlega frelsað alla, sem hans vegna ganga fram fyrir Guð, því að hann lifir ávallt á himni til að biðja fyrir þeim.
26 Hann er einmitt presturinn sem við þörfnumst: Hann er heilagur, lýtalaus, óflekkaður og situr ekki á bekk með syndurum, heldur í heiðurssæti á himnum. 27 Hann þarf ekki daglega að bera fram blóð úr fórnardýrunum eins og hinir prestarnir, sem þurftu að fórna fyrir sínar eigin syndir og syndir alls fólksins, því að hann bar fram eina fórn, í eitt skipti fyrir öll, er hann fórnaði sjálfum sér á krossinum. 28 Meðan hinn gamli siður var í gildi, voru æðstu prestarnir syndugir menn, veikleika háðir eins og hverjir aðrir, en seinna skipaði Guð son sinn með eiði og sonurinn er fullkominn að eilífu.
<- Hebreabréfið 6Hebreabréfið 8 ->