2 Jesús var trúr Guði, sem hafði skipað hann æðsta prest, á sama hátt og Móse þjónaði af trúmennsku í húsi Guðs. 3 En Jesús hlaut enn meiri dýrð en Móse, rétt eins og sá sem byggir fallegt hús hlýtur meiri heiður en húsið sjálft. 4 Þeir eru margir sem byggt geta hús, en aðeins einn, sem allt hefur skapað, og það er Guð.
5 Satt er það að Móse kom miklu góðu til leiðar, þann tíma sem hann starfaði í húsi Guðs, en hann var aðeins þjónn. Starf hans var einkum að gefa hugmynd um og lýsa því, sem síðar yrði. 6 Kristur, sonur Guðs, ber hins vegar ábyrgð á öllu húsi Guðs. Við kristnir menn erum bústaður Guðs og Guð býr í okkur, ef við varðveitum djörfung okkar, gleði og trúna á Drottin allt til enda.
7-8 Fyrst Kristur er svo miklu æðri, þá hvetur heilagur andi okkur til að hlusta á hann í dag og taka eftir því sem hann segir, en ekki loka hjörtum okkar fyrir honum, eins og Ísraelsþjóðin gerði. Þeir brynjuðu sig gegn kærleika hans og mögluðu gegn honum í eyðimörkinni, einmitt þegar hann var að reyna þá. 9 En þolinmæði Guðs við þá brást ekki í fjörutíu ár, enda þótt á hana reyndi til hins ýtrasta, og hann hélt áfram að vinna hin miklu kraftaverk sín á meðal þeirra. 10 „En,“ segir Guð, „ég var þeim reiður, því þeir voru alltaf með hugann við eitthvað annað en mig og komu aldrei auga á leiðina sem ég ætlaði þeim að fara.“
11 Þegar reiði Guðs gegn þeim hafði náð hámarki, þá hét hann því að þeir skyldu aldrei ná að hvílast í landinu, sem hann hafði ætlað þeim.
15 Nú er einmitt rétti tíminn til að minna okkur á þessa aðvörun: „Ef þið heyrið rödd Guðs tala til ykkar í dag, verið þá ekki þrjósk og óhlýðin við hann eins og Ísraelsþjóðin, þegar hún reis gegn honum í eyðimörkinni.“
16 Hvaða menn voru þetta, sem heyrðu Guð tala til sín, en snerust gegn honum? Það voru þeir, sem yfirgáfu Egyptaland undir forystu Móse. 17 Og hverjir reittu Guð til reiði í fjörutíu ár? Þetta sama fólk, sem þannig syndgaði, og því dó það í eyðimörkinni. 18 En hverjir fengu orð frá Guði um að þeir skyldu aldrei komast inn í landið, sem hann hafði heitið þjóð sinni? Það voru allir þeir sem höfðu óhlýðnast honum. 19 En hvers vegna komust þeir ekki inn í landið? Vegna þess að þeir trúðu honum ekki.
<- Hebreabréfið 2Hebreabréfið 4 ->