4 Frá byrjun hefur Guð sýnt sannleiksgildi boðskaparins með táknum, undrun og margvíslegum kraftaverkum. Einnig hefur hann gefið þeim sem trúa sérstakar gjafir heilags anda, og slíkum gjöfum hefur hann úthlutað sérhverju okkar.
5 Hinn komandi heimur, sem við höfum talað um, mun ekki verða undir stjórn engla. 6 Það sést í Sálmunum. Þar spyr Davíð Guð: „Hvers virði er maðurinn, fyrst þú lætur þér svo annt um hann, sem raun ber vitni? Hver er þessi mannssonur sem þú metur svo mikils? 7 Þótt þú gerðir hann englum lægri skamma stund, hefur þú nú krýnt hann heiðri og dýrð 8 og sett hann yfir allt sem til er, og þar er ekkert undanskilið.“
11 Nú eigum við, sem Jesús hefur helgað, sama föður og hann og því blygðast Jesús sín ekki heldur fyrir að kalla okkur bræður og systur. 12 Hann segir í Sálmunum: „Ég vil tala við systkini mín um Guð, föður minn, og við munum lofsyngja hann sameiginlega.“ 13 Í annað sinn sagði hann: „Ég mun halda áfram að treysta Guði.“ Og í enn eitt skipti sagði hann: „Sjá, hér er ég og börnin, sem Guð gaf mér.“
14 Fyrst við, börn Guðs, erum mannlegar verur holdi klæddar, þá varð hann einnig hold og blóð er hann fæddist sem maður, því aðeins á þann hátt gat hann dáið og með dauða sínum brotið vald djöfulsins, sem hafði vald dauðans. 15 Þetta var eina leið hans til að frelsa þá, sem hafa lifað allt sitt líf í stöðugum ótta við dauðann.
16 Við vitum öll að hann kom ekki sem engill, heldur sem maður – sem Gyðingur. 17 Það var nauðsynlegt að Jesús yrði líkur okkur bræðrum sínum, til þess að hann gæti orðið okkur trúr og miskunnsamur æðsti prestur, frammi fyrir Guði, prestur, sem bæði væri okkur náðugur og Guði trúr í því að friðþægja fyrir syndir mannanna. 18 Sjálfur stóðst hann allar þjáningar og freistingar. Hann þekkir vel líðan okkar þegar við þjáumst og verðum fyrir freistingum og þess vegna er hann fær um að hjálpa þeim, sem er freistað.
<- Hebreabréfið 1Hebreabréfið 3 ->