8 Hugsið ykkur! Ekki hafði ég unnið til þess á nokkurn hátt, en samt valdi hann mig, sem er sístur allra kristinna manna, til að verða þeirrar gæfu aðnjótandi, að fá að flytja heiðingjunum fagnaðarerindið um þá miklu auðlegð sem þeir eiga í Kristi. 9 Mér var falið að útskýra fyrir öllum að Guð væri einnig frelsari heiðingjanna – kunngjöra áætlun hans frá örófi alda, hans, sem allt hefur skapað.
10 Hvers vegna gerði Guð þetta? Hann gerði það til að sýna öllum valdhöfum í himinhæðum sinn fullkomna vísdóm: Að öll fjölskylda hans – jafnt Gyðingar sem heiðingjar – er sameinuð í kirkju hans, 11 einmitt eins og hann hugsaði sér í upphafi að hafa það í Jesú Kristi, Drottni okkar. 12 Nú megum við ganga rakleiðis fram fyrir Guð, án þess að hræðast, fullviss þess að hann muni taka vel á móti okkur þegar við komum í fylgd með Kristi og í trú á hann.
13 Látið því ekki meðferðina sem ég hef hlotið hér, draga úr ykkur kjarkinn. Ég þjáist ykkar vegna, ykkur til heiðurs og uppörvunar. 14-15 Þegar ég hugsa um mikilleik Guðs og visku, þá krýp ég á kné og bið til föðurins fyrir þessari stóru fjölskyldu hans – hluti hennar er þegar á himnum en hinir eru enn hér á jörðu. 16 Ég bið að hann gefi ykkur af ríkdómi sínum, sem aldrei þrýtur, svo að þið styrkist fyrir heilagan anda hið innra með ykkur. 17 Ég bið þess einnig að Kristur fái stöðugt meira rúm í hjörtum ykkar og megi búa í ykkur vegna trúarinnar. Ég bið þess að þið festið djúpar rætur í kærleika Guðs – það er góður jarðvegur. 18-19 Það er einnig bæn mín að þið fáið sjálf að reyna og skilja, eins og öll börn Guðs ættu að gera, hversu víður og langur, djúpur og hár, kærleikur hans er. Kærleikur hans er svo mikill að þið munuð aldrei geta þekkt hann eða skynjað til fulls. Þannig mun Guð fylla og auðga líf ykkar með elsku sinni og blessun.
20 Dýrð sé Guði, sem starfar í okkur með krafti sínum og getur gert langtum meira en við munum nokkru sinni þora að biðja eða láta okkur dreyma um. 21 Dýrð sú er hann birti heiminum í Kristi Jesú, verði augljós í söfnuði hans um alla framtíð, öld eftir öld.
<- Efesusbréfið 2Efesusbréfið 4 ->