1 Á þessum tíma, þegar kirkjan óx hröðum skrefum, kom upp óánægja hjá grískumælandi Gyðingum í söfnuðinum út af því að ekkjur þeirra fengju ekki sinn hlut við hina daglegu matarúthlutun. 2 Postularnir tólf kölluðu því allan söfnuðinn saman og sögðu:
5 Þetta líkaði öllum vel og síðan voru eftirtaldir menn valdir: Stefán (maður óvenju sterkur í trúnni og fylltur heilögum anda), Filippus, Prókorus, Níkanor, Tímon, Parmenas og Nikolás frá Antíokkíu (hann hafði verið heiðingi, en snúist til Gyðingatrúar og síðan orðið kristinn). 6 Þessir sjö voru leiddir fyrir postulana, sem lögðu hendur yfir þá, báðu fyrir þeim og blessuðu þá.
9 Dag nokkurn tóku menn úr trúflokki meðal Gyðinga, sem kallast „Frelsingjarnir“, að þrátta við hann. Fljótlega fengu þeir í lið með sér aðra Gyðinga frá Kýrene, Alexandríu í Egyptalandi, Kilikíu og Asíu, 10 en enginn þeirra gat þó staðið gegn anda og vísdómi Stefáns.
11 Þeir fengu því menn til að bera út þann óhróður, að þeir hefðu heyrt Stefán bölva Móse og jafnvel sjálfum Guði.
14 Þeir sögðu: „Við höfum heyrt hann segja að þessi Jesús frá Nasaret, muni leggja musterið í rúst og fótum troða lög Móse.“ 15 Þegar hér var komið veittu meðlimir ráðsins því athygli að andlit Stefáns lýsti sem engilsásjóna!
<- Postulasagan 5Postulasagan 7 ->