5 Morguninn eftir komu allir helstu ráðamenn og fræðimenn Gyðinga – Æðstaráðið – saman í Jerúsalem. 6 Í ráðinu áttu sæti meðal annarra: Annas æðsti prestur, Kaífas, Jóhannes, Alexander og mörg önnur skyldmenni æðsta prestsins. 7 Lærisveinarnir tveir voru leiddir fyrir ráðið.
8 Pétur svaraði, fylltur heilögum anda: „Heiðruðu leiðtogar og öldungar þjóðar okkar. 9 Ef þið eigið við góðverkið á bæklaða manninum og hvernig hann hafi læknast, 10 þá sé ykkur öllum ljóst, og um leið allri þjóðinni, að þetta var gert í nafni Jesú Krists frá Nasaret, þess sem þið krossfestuð og Guð reisti upp frá dauðum. Það er fyrir hans kraft að þessi maður er orðinn heilbrigður. 11 Jesús Kristur er sá sem í Biblíunni er nefndur „steinninn sem húsameistararnir fleygðu, en nú er orðinn að hornsteini byggingarinnar“. 12 Hann er sá eini sem getur frelsað okkur frá syndinni og annað nafn er ekki til, sem menn geta ákallað sér til hjálpræðis.“
13 Þegar meðlimir ráðsins sáu djörfung Péturs og Jóhannesar og komust að því að þeir voru ólærðir almúgamenn, undruðust þeir. Þeir könnuðust reyndar við þá, því að þeir höfðu séð þá með Jesú. 14 Maðurinn, sem læknast hafði, stóð sjálfur við hlið Péturs og Jóhannesar, og því var erfitt fyrir ráðið að mótmæla lækningunni. 15 Þeir sögðu þeim að fara úr salnum og héldu síðan áfram fundinum.
16 „Hvað eigum við að gera við þessa menn?“ spurðu þeir hver annan. „Því er ekki að neita að þeir hafa gert stórkostlegt kraftaverk, það vita allir hér í Jerúsalem. 17 Kannski getum við hindrað þá í að breiða út þennan áróður. Við hótum þeim refsingu ef þeir gera þetta aftur.“ 18 Síðan kölluðu þeir þá aftur inn og bönnuðu þeim stranglega að tala um Jesú framar.
19 „Ætlið þið að ákveða hvorum við hlýðum – Guði eða ykkur?“ spurðu Pétur og Jóhannes og bættu síðan við: 20 „Við getum ekki annað en sagt frá öllu því sem við fengum að reyna hjá Jesú.“
21 Þá hótaði ráðið þeim aftur öllu illu, en sleppti þeim svo. Þeir vissu hreint ekki hvernig ætti að refsa þeim, án þess að til óeirða kæmi, því að allir lofuðu Guð fyrir þetta mikla kraftaverk. 22 Maðurinn, sem læknaðist, hafði verið lamaður í fjörutíu ár!
23 Eftir að þeir voru látnir lausir, fóru þeir að hitta hina lærisveinana og sögðu þeim niðurstöðu ráðsins.
31 Þegar þeir höfðu lokið bæninni, hrærðist staðurinn þar sem þeir voru, og þeir fylltust allir heilögum anda og tóku að predika Guðs orð með djörfung.
36 Það gerði Jósef frá Kýpur, sem postularnir kölluðu huggunarsoninn. Hann var af ætti Leví. 37 Hann seldi akur og færði postulunum andvirði peninganna, svo að þeir gætu skipt því meðal þeirra sem þurfandi voru.
<- Postulasagan 3Postulasagan 5 ->