II. Þessaloníkubréf
1 Frá Páli, Sílasi og Tímóteusi.
7 Því segi ég við ykkur sem illt þolið: Guð mun frelsa ykkur, og okkur, úr þessum þrengingum. Það verður þegar Drottinn Jesús kemur frá himnum ásamt sínum voldugu englum. 8 Hann kemur í logandi eldi og mun kveða upp dóm yfir þeim sem ekki þekkja Guð og þeim sem óhlýðnast fagnaðarerindi hans. 9 Þeir munu glatast og þeim refsað með eilífum aðskilnaði frá Drottni. Þeir munu ekki sjá dýrð hans og mátt, 10 er hann birtist til að hljóta lof og tilbeiðslu allra þeirra sem á hann trúa, en þeirra á meðal verðið þið, því þið trúðuð vitnisburði okkar um hann.
11 Þess vegna biðjum við stöðugt fyrir ykkur, að Guð varðveiti ykkur og fullkomni allt það góða sem þið vinnið að í trú og krafti hans. 12 Þá mun nafn Drottins verða vegsamlegt í lífi ykkar og þið sjálf verða honum til dýrðar. Þessu mun kærleikur og miskunn Guðs koma til leiðar.
II. Þessaloníkubréf 2 ->