1 Kæru vinir, fyrst við eigum slík loforð sem þessi, snúum þá baki við öllu sem rangt er, hvort sem það er líkamlegt eða andlegt. Hreinsum okkur, lifum í sannri trú og gefum okkur Guði einum á vald.
2 Því segi ég ykkur: Opnið hjörtu ykkar á ný fyrir okkur, því að ekkert ykkar hefur orðið að þola neitt rangt af okkar hendi. Ekkert ykkar leiddum við afvega. Ekki höfum við svikið neitt ykkar eða rænt ykkur neinu. 3 Þetta segi ég ekki í ávítunartón eða til að ásaka ykkur, því – eins og ég hef áður sagt – þá elska ég ykkur í lífi og dauða. 4 Ég ber mikið traust til ykkar og er mjög hreykinn af ykkur. Þið hafið orðið mér til mikillar uppörvunar og glatt mig stórlega í öllum þrengingum mínum.
11 Sjáið nú til: Þessi hryggð frá Guði varð ykkur til góðs. Kæruleysið hvarf, en í staðinn urðuð þið grandvör og einlæg og vilduð umfram allt losna við syndina, sem ég benti ykkur á í bréfi mínu. Þið urðuð hrædd vegna þess sem gerst hafði og þráðuð að ég kæmi og hjálpaði ykkur. Þið sneruð ykkur strax að því að leysa vandann og upplýsa málið. Þið hafið gert allt, sem í ykkar valdi stóð, til að koma þessu í lag.
12 Ég skrifaði ykkur til þess að umhyggja ykkar fyrir okkur yrði Guði augljós. Sá var tilgangur minn með bréfinu, miklu fremur en sá að hjálpa manninum sem syndgaði eða þeim sem var órétti beittur.
13 Auk þeirrar uppörvunar, sem þið veittuð okkur með kærleika ykkar, þá glöddumst við enn meir vegna Títusar, vegna þess hve hann varð glaður og hve vel þið tókuð á móti honum. 14 Ég sagði honum hvernig allt ætti að vera. Ég sagði honum líka hve hreykinn ég væri af ykkur, áður en hann lagði af stað – og ég varð ekki fyrir vonbrigðum með ykkur. Ég hef alltaf sagt ykkur sannleikann og hrós það, sem ég veitti ykkur í áheyrn Títusar, hefur einnig reynst rétt. 15 Kærleikur hans til ykkar er meiri nú en nokkru sinni fyrr, einmitt vegna þess að hann minnist þess hve fús þið voruð að hlusta á orð hans og hve áhugi ykkar og einlægni ristu djúpt. 16 Nú er ég glaður! Nú veit ég að allt er komið í lag okkar á milli. Enn einu sinni get ég sagt: Ég ber fullkomið traust til ykkar.
<- II. Korintubréf 6II. Korintubréf 8 ->