6 Ef þú brýnir þetta fyrir hinum trúuðu, ert þú góður þjónn Jesú Krists, sem lifir í trú á hina réttu kenningu, sem þú hefur fylgt.
7 Eyddu ekki tíma í deilur um fánýt efni eða kjánalegar goðsagnir og helgisögur. Kappkostaðu miklu fremur að viðhalda andlegri hæfni þinni. 8 Líkamsþjálfun getur að vísu verið gagnleg en iðkun trúarlífsins er miklu þýðingarmeiri og er þér til hressingar á allan hátt. Leggðu því stund á andlega þjálfun og æfðu þig í því að verða heilsteyptari í trúnni. Það er nytsamlegt, bæði nú í þessu lífi og einnig í hinu komandi. 9-10 Þetta er satt og eftir þessu ættu allir að fara. Við leggjum hart að okkur og þolum miklar raunir í viðleitninni til að fá fólk til að trúa þessu, því við höfum sett von okkar á hinn lifandi Guð, sem dó fyrir alla, en þó sérstaklega þá sem tekið hafa við hjálpræði hans.
11 Þetta skaltu kenna og gættu þess vel að allir taki námið alvarlega. 12 Láttu engan líta niður á þig, vegna þess hve ungur þú ert, en vertu fyrirmynd trúaðra og farðu sjálfur eftir því sem þú kennir og þá munu þeir einnig gera það. Vertu þeim líka til fyrirmyndar í kærleika, trú og hreinleika. 13 Ég bið þig að lesa og útskýra orð Guðs af kostgæfni fyrir söfnuðinum og boða það þangað til ég kem.