6 Biskup eða safnaðarleiðtogi á ekki að vera nýr í trúnni, svo að hann ofmetnist ekki og rógberarnir fái höggstað á honum. 7 Hann verður einnig að hafa gott orð á sér meðal þeirra sem ekki eru kristnir, svo að Satan ásaki hann ekki og hann missi kjarkinn til að leiða söfnuðinn.
8 Aðrir þjónar og starfsmenn safnaðarins eiga líka að vera góðir og traustir. Ekki óáreiðanlegir, drykkfelldir eða gráðugir í peninga. 9 Þeir verða að taka hlutina alvarlega og fylgja Kristi heils hugar, því að hann er uppspretta trúar þeirra. 10 Látið þessa menn sinna fyrst öðrum minni háttar störfum fyrir söfnuðinn, til að reyna staðfestu þeirra og hæfileika, áður en þeim er fengið fullt starf. Ef þeir standa sig vel, þá má gjarnan velja þá sem safnaðarþjóna.
11 Konur eiga að vera siðprúðar, en ekki raupsamar. Þær stjórnist af hófsemi og séu trúar í öllu. 12 Safnaðarþjónn á að vera eiginkonu sinni trúr, og reglusemi og gleði skal ríkja á heimili þeirra. 13 Þeir sem standa sig vel sem safnaðarþjónar, munu njóta virðingar fólksins, þeim mun aukast kjarkur og trú þeirra vaxa.
14 Mér finnst rétt að skrifa þér um þessa hluti, enda þótt ég vonist til að hitta þig bráðlega, 15 því ef mér seinkar, þá veistu hverja þú átt að velja til leiðtogastarfa í söfnuði Guðs – þá sem halda sannleika Guðs hátt á lofti. 16 Víst er guðrækilegt líferni enginn leikur, en það er þó mögulegt í samfélaginu við Krist. Hann kom til jarðarinnar sem maður. Hann reyndist hreinn og syndlaus í anda sínum og englar þjónuðu honum. Hann var boðaður meðal þjóðanna, hvarvetna trúðu menn á hann og síðan var hann hafinn upp í dýrð himnanna.
<- I. Tímóteusarbréf 2I. Tímóteusarbréf 4 ->