5 En sem sagt, þegar ég þoldi ekki lengur þessa óvissu, þá sendi ég Tímóteus til að komast að því hvort þið væruð staðföst í trúnni. Ég var hræddur um að Satan hefði ef til vill fellt ykkur og erfiði okkar væri allt unnið fyrir gýg. 6 En nú er Tímóteus nýkominn aftur með þær gleðifréttir, að trú ykkar sé sterkari og kærleikurinn dýpri en nokkru sinni. Hann sagði einnig að þið hefðuð minnst heimsóknar okkar með gleði og þráð jafn heitt og við að við gætum hist á ný.
7 Kæru vinir, þessar fréttir, að þið séuð stöðug í Drottni, hafa huggað okkur stórlega í þeim erfiðleikum og þjáningum sem við verðum að þola hér. 8 Við getum þolað hvað sem er, svo framarlega sem við vitum að þið séuð staðföst í trúnni á Jesú Krist.
9 Hvernig getum við nógsamlega þakkað Guði fyrir gleðina sem þið hafið veitt okkur í samfélaginu við Drottin? 10 Við biðjum Guð þess dag og nótt að við fáum að heimsækja ykkur á ný, svo að við getum aukið enn meir við trú ykkar. 11 Ég bið þess að sjálfur Guð, faðir okkar, og Drottinn Jesús, opni okkur leið til ykkar á ný. 12 Auk þess bið ég Drottin að kærleikur ykkar hvers til annars og til allra, aukist æ meir, eins og kærleikurinn sem við berum til ykkar. 13 Þannig mun Guð, faðir okkar, styrkja ykkur og helga, og hreinsa hjörtu ykkar af allri synd, svo að þið getið staðið hrein frammi fyrir honum þann dag, er Drottinn Jesús Kristur kemur aftur ásamt öllum þeim er honum tilheyra.
<- I. Þessaloníkubréf 2I. Þessaloníkubréf 4 ->