Link to home pageLanguagesLink to all Bible versions on this site

I. Þessaloníkubréf

1 Frá Páli, Sílasi og Tímóteusi.

Til safnaðarins í Þessaloníku – ykkar, sem tilheyrið Guði föður og Drottni Jesú Kristi. Guð faðir og Jesús Kristur, Drottinn okkar, blessi ykkur ríkulega og gefi ykkur frið í hug og hjarta.

2 Mikið erum við þakklátir Guði fyrir ykkur. Og við biðjum fyrir ykkur. 3 Þegar við tölum við Guð föður okkar, þá minnumst við kærleiksverka ykkar, sterkrar trúar og hve óhagganleg þið eruð í voninni um endurkomu Drottins Jesú Krists.

Lifandi trú
4 Kæru vinir, við vitum að Guð hefur kallað ykkur og að hann elskar ykkur. 5 Þetta segjum við vegna þess að þegar við fluttum ykkur gleðiboðskapinn, þá lituð þið ekki á hann sem eitthvert blaður, heldur hlustuðuð með mikilli athygli. Orð okkar höfðu sterk áhrif á ykkur og heilagur andi gaf ykkur djúpa og einlæga sannfæringu um, að það sem við sögðum væri satt. Þið vitið einnig að framkoma okkar var í fullu samræmi við orð okkar. 6 Þannig urðuð þið fylgjendur okkar, og þar með Drottins, því að þið tókuð á móti boðskapnum með gleði heilags anda, þrátt fyrir ofsóknir og erfiðleika sem það færði ykkur.

7 Þið urðuð fyrirmynd kristnu fólki um alla Makedóníu og Akkeu. 8 Nú hefur orð Drottins borist frá ykkur, langt út fyrir landamæri ykkar. Það er sama hvert við förum, alls staðar hittum við fólk sem talar um ykkar sterku trú. Við þurfum ekki að segja neitt, 9 því það segir okkur að fyrra bragði frá þeim stórkostlegu móttökum sem við fengum hjá ykkur. Hvernig þið sneruð ykkur frá skurðgoðunum og til Guðs, og í dag er hann – hinn lifandi og sanni Guð – húsbóndinn í lífi ykkar.

10 Fólk hefur einnig sagt okkur hve mjög þið væntið endurkomu Guðs sonar frá himnum – Jesú sem Guð reisti frá dauðum. Hann einn getur frelsað ykkur frá reiði Guðs, vegna syndarinnar.

I. Þessaloníkubréf 2 ->