I. Jóhannesarbréf
5 Þetta er boðskapurinn sem Guð sendi okkur með til ykkar: Guð er ljós og myrkur er alls ekki í honum. 6 Ef við segjum að við séum vinir hans, en höldum samt áfram að lifa í andlegu myrkri og synd, þá ljúgum við. 7 En ef við lifum í ljósi Guðs á sama hátt og Kristur, þá getum við glaðst og átt dásamlegt samfélag hvert við annað og blóð Jesú, sonar hans, hreinsar okkur af allri synd.
8 Ef við segjum að við séum ekki syndarar, þá blekkjum við sjálf okkur og viljum ekki horfast í augu við sannleikann. 9 En ef við játum syndir okkar fyrir Guði, getum við treyst því að hann fyrirgefi þær og hreinsi okkur af öllu ranglæti. Í þessu gerir Guð rétt, því að Kristur dó til þess að taka burt syndir okkar. 10 Ef við höldum því fram að við höfum ekki syndgað, þá ljúgum við og köllum Guð lygara, því að það er hann sem segir að við höfum syndgað.
I. Jóhannesarbréf 2 ->